Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, August 24, 2006

Allt að smella...

Ég held að ég sé bara komin langleiðina með að redda næstu jólum. Fyrir um ári síðan var ákveðið að verja jólunum 2006 á Flórída í nágrenni við Disneyland. Ég var því búinn að bíða eftir vaktaplaninu mínu á milli vonar og ótta. Ég á að vera á vakt 21. og 29. desember. Í dag tókst mér að pranga vaktinni þann 29 inn á grískan starfsfélaga minn sem ætlar ekki til Grikklands fyrr en eftir áramót, gott ef jólin hjá honum eru ekki þá. Mér hefur einnig tekist að sannfæra starfsfélaga minn á deildinni um að það sé bara ljómandi gott að vinna á milli jóla og nýárs þannig að hann mun dekka mig þá.
Þá á ég bara eftir að fá þetta skriflegt og staðfest. Ég þarf einnig að fara í megrun, sem ætti ekki að vera erfitt þar sem ég er að vinna núna. Ég lít út eins og risastór kleinuhringur samanborið við glæsilegt venslafólk mitt sem við munum verja jólunum með.
Flórída, here I come!
kv Kalli

1 Comments:

  • Hæ kæri kleinuhringur. Hmmmm ekki hefur mér fundist þú kleinuhringjalegur á myndunum sem að ég hef séð hér á síðunni. Eitthvað grunsamlegt við þetta. Til hamingju með að vera búin að redda vöktunum...það eru góðar fréttir. Já þú þarft að vera tilbúin í golfið því Högni dregur alla í golf hvort sem þeir kunna það eða ekki.
    Já það er einmitt gamlársdagur sem er einn af þremur mest sóttu dögum í disney. Við skulum því reyna að gera eitthvað annað þann daginn. Ég er með heilann lista af skemmtilegum hlutum sem hægt er að gera þarna enda bara farið í Disney Orlando fjórum sinnum og einu sinni þegar við heimsóttum Heiðrúnu og Orra í Californiu. Reyndar aldrei farið á Dali safnið sem Orri er að tala um. Skelli mér á það næstu jól;)

    By Blogger Fnatur, At Sunday, 27 August, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home