Lególand er skítafyrirtæki
Við fórum í Lególand um daginn og ákváðum að kaupa ársmiða. 200 pund fyrir fjölskylduna takk fyrir. Við valhoppuðum samt af gleði og eftirvæntingu inn í garðinn. Það fyrsta sem blasti við okkur var sérstakt tilboð á ársmiðum. Borgaðu 30 pund aukalega og þú færð ársmiða fyrir dagsmiðann. Á sama tíma, í um 10 metra fjarlægð var verið að selja ársmiða á fullu verði, þar á meðal okkur. Munurinn var umtalsverður eða um 60 pund fyrir fjölskylduna. Við kvðrtuðum að sjálfsögðu vegna þess að við erum kominn í svo góða æfingu í að kvarta. Við vorum send út úr húsinu sem afgreiddi ársmiðana og sagt að fara í lúgu sem var úti til að fá ársmiðana endurgreidda, kaupa dagsmiða og SÍÐAN upgreida allt heila klabbið með því að borga meira. Ekki nóg með það. Úti var ausandi rigning og aumingja Ásta rigndi hreinlega niður ásamt fleirum í óralangri biðröð. Á meðan þurfti ég að húka inni í ársmiðahúsinu til að passa Kalla litla og kerruna. Húsið var alltof heitt þannig að svitinn lak af mér. Mér finnst nú lágmark að gera ráð fyrir því að fólk tekur nú almennt ekki af sér útifötin þegar það fer þarna inn, enda enga hanka eða fatahengi að finna. Nei, nei, bara hugsað um starfsfólkið í sínum Lególandsstuttermabolum. Það er eins og ég segi: Lególand er bara skítafyrirtæki.
kv Kalli
kv Kalli

4 Comments:
Hey Kalli darling, ég skora á þig að blogga næst um Amida.
Kær kveðja eiginkonan.
By
Anonymous, At
Wednesday, 06 September, 2006
Sæl þið öll, er ekki málið að koma bara heim á klakann og gefa skít í þetta skítaland....:-)
EBE
By
Anonymous, At
Thursday, 07 September, 2006
Nei bara gefa skít í Uk og koma til okkar til USA. Þar getið þið keypt ársmiða í disney í staðinn án nokkus böggaboo.
By
Fnatur, At
Friday, 08 September, 2006
Já, sá dagur mun koma að maður kaupir one-way-ticket á til Fósturjarðarinnar. Nenni samt ekki alveg strax. Ég kem þegar Árni Johnsen er orðinn þingmaður og hefur keypt sinn fyrsta dúk í Húsasmiðjunni. kv Kalli
By
Bromley, At
Friday, 08 September, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home