Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, August 13, 2006

Grafið í Croydon

Eitt af því leiðinlegasta sem ég geri er að flytja. Maður þarf að pakka niður, þrífa, fara í pósthúsið með gasreikninga, bankayfirlit, vegarbréfið sitt og nánast skila inn DNA prófi til að láta áframsenda póstinn sinn á nýja heimilisfangið. Ég held nú samt að það myndi dálítið drepa niður stemmninguna í flutningunum ef það kæmi nafnlaust bréf inn um bréfalúguna á nýja staðnum um að það væru tvo lík grafinn í bakgarðinum. Hugsið ykkur, maður er kannski nýbúinn að setja niður haustlaukana, slá og gera garðinn fínann, þá fær maður svona bréf. Þetta upplifði fólk í Croydon núna nýlega, næsta hverfi við okkur. Núna er garðurinn þeirra í rúst. Þau eiga alla mína samúð.
Það kom í ljós að barnaníðingur bjó í húsinu fyrir 35 árum. Hann er núna á áttræðisaldri og er að afplána sinn dóm í fangelsi. Árið 1994 kom upp mál sem byrjaði á svipaðan hátt en engan óraði fyrir á sínum tíma hversu umfangsmikið það myndi verða. Hjónin Fred og Rose West bjuggu í 25 Cromwell Street í Gloucester. Fred var 52 ára smiður en hún var 40 ára vændiskona þegar málið kom upp. Áður en yfir lauk var búið að finna líkamsleifar 9 ungra kvenna sem voru grafin í kjallaranum, baðherberginu (?) og garðinum. Auk þess fundust líkamleifar 8 ára stjúpdóttur Freds grafnar hjá næsta húsi og líkamsleifar fyrstu eiginkonu hans og barnfóstru fundust grafin í sveit í nágrenninu.
Þetta er náttúrulega þvílíkur viðbjóður að það tekur engu tali og ég ætla því ekki að rekja það frekar. Þeir sem hafa áhuga geta gluggað í fjölda bóka en ég get nefnt tvær sem ég á: Fred & Rose, The Full Story of Fred and Rose West and The Gloucester House of Horrors höf. Howard Sounes; The Corpse Garden, höf. Colin Wilson, sem er ekki alveg jafngóð.
Fred drap sig í fangelsi, hann fylltist sjálfsvorkun og hengdi sig. Rose er enn í fullu fjöru og það leka reglulega fréttir af henni úr fangelsinu. Það síðasta sem ég heyrði var að hún sér um afar vinsælt matreiðslunámskeið fyrir samfanga sína og virðist bara hafa það ljómandi takk fyrir.
En hvað um Croydon? Enn hafa engin lík fundist eftir því sem ég best veit en löggan er að fara í gegnum húsið millimetra fyrir millimetra. Ef það er eitthvað sem breska löggan er góð í þá er það þetta, hún hefur æfinguna. kv Kalli

2 Comments:

  • Merkilegt hve mörg mál af þessu tagi koma upp, eða öllu heldur, upplýsast í Bretlandi. Ef ég man rétt þá hef ég séð tölfræði um að bretar eigi heimsmet í svona málum, líkum í kjöllurum og görðum húsa, miðað við hausatölu að sjálfsögðu. Ég er frekar á þeirri skoðun að breska löggan sé í hæsta gæðaflokki og upplýsi því frekar mál af þessu tagi en starfsbræður þeirra, ekki síst í gömlu austantjaldslöndunum þar sem búið var að útrýma glæpum ef marka má yfirlýsingar þaðan frá því er dýrðin stóð sem hæst. Þar var samkvæmt opinberum tölum búið að útrýma glælpahneygð, innræta fólki heiðarleika og mannkærleik, paradísin var orðin að veruleika. Það er töluverður munur á vinnubrögðum bresku lögreglunnar og þeirrar bandarísku. Til marks um það eru gjarnan tekið mál Henry Lee Lucas sem var bandarískur krimmi. Hann var grunaður um nokkur manndráp og hafði lag á því að manipulera með FBI og staðarlögregluna í hverju fylkinu á fætur öðru. Var hann verðlaunaður með tóbaki, sælgæti og dýrindis krásum með hverri sögunni af annarri um morð sem hann kvaðst hafa framið hér og þar um öllu 50 fylkin. Talan var komin yfir 100 dráp ef ég man rétt. Menn eru á því í dag að hann hafi hugsanlega drepið einn til þrjá. Gíslu Guðjónsson, réttarsálfræðingur, tekur þessa "verðlaunaaðferð" gjarnan sem tæmi um kjánaskap bandarískra lögreglumanna sem komu að málum patans Henry Lee. Vonandi fæst botn í Croydon-málið sem fyrst.
    P.S.
    Ég veit um heimilisföður í Bromley sem hefur nokkra reynslu af uppgreftri í garði sínum (sjá myndir á síðunni Bromleytíðindi fyrir skömmu) sem mér finnst sjálfsagt að bjóði nú lögreglunni "sérfræðiþjónustu" hvað varðar meðhöndlum raðmorðingja og uppgröft. Slíkir menn eru ekki á hverju strái. Já, ekki á "ná"-strái ef þeir ná að markaðsetja sig í landi raðmorðingjanna, the UK.

    Einar, pabbi.

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 14 August, 2006  

  • a skeleton in the closet or in the backyard?

    By Blogger brynjalilla, At Monday, 14 August, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home