Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, May 16, 2006

Þar sem frá var horfið...

Það er orðið nokkuð um liðið síðan við blogguðum síðast. Hér er smá update:
Við strákarnir fórum í Homebase um daginn og keyptum mini-gróðurhús, blómafræ og kálfræ. Hver fjölskyldumeðlimur fékk síðan úthlutað einum bakka, gróðurmold og fræjum. Núna nokkru síðar er allt að verða vitlaust í gróðurhúsinu. Blómabakkinn minn var að sjálfsögðu fyrstur af stað en Ástu síðastur; hennar blóm eru reyndar svo lítil að það þarf nánast stækkunargler til að sjá þau og virðast ekki vaxa rassgat. Blómin okkar strákana eru hins vegar orðin svo stór að þau eru að verða tilbúin út í villta náttúruna í garðinum.
Ásta var reyndar svo hrifin af árangrinum í gróðurhúsinu að hún keypti tómatafræ og agúrkutrésfræ(?!). Mér til mikillar ánægju eru agúrkútré farin að vaxa í gróðurhúsinu og ég er því farinn að skoða "alvöru" gróðurhús á netinu. Það er hægt að fá fín 2m x 3m gróðurhús á 50-60 þús kall sem er ekki neitt og ætti að borga sig upp eftir svona þúsund agúrkur miðað við hvað þær kosta úti í búð núna. Bætum síðan tómötunum við og við erum í hörkubisness. Já, kallinn minn.
Framgarðurinn lítur núna minna út eins og leiði, eftir að við settum hvíta steina í hinn helming garðins er þetta meira eins og fjölskyldugrafreitur. Það er pláss fyrir tvo fullorðna öðrum megin en einn hinum megin. Þá er ég náttúrulega að tala um venjulega greftum. Ef líkin eru brennd, þá erum við sennilega að tala um svona 10 krúsir öðrum megin en 5 hinum megin, og er þá vel rúmt um hvern.
kv Kalli

4 Comments:


  • Gaman að heyra að þið séuð á lífi...
    Skil vel að það sé stuð að fylgjst með gróðurhúsinu...mæli með að rækta gulrætur, ótrúlegt hvað þær bragðast mikið betur sem maður ræktar sjálfur en þær sem maður kaupir ;-)

    Gott að vita af fjölskyldugrafreitnum ykkar ef maður lendir í vandræðum... hahahahah

    kv.
    Anna Björg

    p.s. á ekki að fylgjast með Eurovision??

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 17 May, 2006  

  • Sæl verið þið öll sömul, gott að sjá að þið eruð á lífi en ekki í garðinum...
    Var farin að sakna skrifanna, þannig að endilega látið fleira flakka frá ykkur

    kv. Eva

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 17 May, 2006  

  • Nýta jörðina og láta brenna sig. Þá getum við líka öll verið í öskupartýi í Englandi hehe. Já ég er að hugsa um að senda plöntuna sem Hildur kom með heim úr skólanum til ykkar í gróðurhúsið. Hildur (sem sagt ég) þarf að halda blessuðu plöntunni á lífi þar til í haust en þá koma allir krakkarnir með pottablómin til baka og verða veitt þrenn verðlaun fyrir þá sem að eru með steruðustu plöntuna eftir sumarið. Ég sem er fræg fyrir að drepa allt sem vel er grænt. Geri bara eins og Ásta sagði mér að gera...kaupa nýja ef sú fyrsta deyr. Frábært ráð.
    Viva Las Vegas, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 17 May, 2006  

  • Ég hef verið að skoða myndirnar á síðunni, m.a. af meintum tilraunum til ræktunar. Grunsamlegt þykir mér hve geðlæknirinn er hugfanginn af beðum á stærð við grafreiti. Ég hélt í einfeldni minni að geðrænir kvillar væru ekki smitandi en geri mér þó grein fyrir því að álag og trauma af ýmsu tetur geta leyst þá úr læðingi.
    Nú er kominn tími til að húsbóndinn í Bromley Mansion takir sér frí og rækti andann frekar en plöntur, líklegast einærar.
    Svona að lokum. Hvað er lóðin stór? Hve margar au pair stúlkur hafa farið út og hve margar komið aftur heim? ...........sko, ég trúi engu misjöfnu en ég er e.t.v. litaður af mínu starfi eins og húsbóndinn í Bromley Mansion. Ég er að fara í frí enda orðinn kaldsveittur,skjálfhentur og raddirnar verða æ háværari.
    KV.
    Einar Ásbj.

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 01 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home