Páskarnir
Við áttum saman góða páskahelgi í Kaupmannahöfn í faðmi vina, annar að læra öldrunarlækningar og hinn í doktorsnámi í að kenna pumpum að tala saman (er samt eðlilegur!). Fórum á fimmtudegi eftir hádegi og komin á Kastrup eftir 90 mínútur - ekkert mál.
Við fórum síðan í dýragarðinn á föstudeginum, skoðuðum dýrin, fengum okkur danskar pylsur og höfðum það náðugt. Á laugardeginum fórum við á Strikið og skoðuðum litlu hafmeyjuna. Við lærðum fljótt að það borgar sig ekki að tala óvarlega á íslensku í Danmörku, það voru alveg merkilega margir Íslendingar á ferli. Við komum síðan heim eldsnemma á mánudagsmorgni eftir afar vel heppnaða ferð. Við setjum inn myndir úr ferðinni við fyrsta tækifæri.
kv Kalli

1 Comments:
Já endilega setjið upp einhverjar myndir úr ferðinni. Gaman að skoða nýjar myndir.
Kær kveðja, Fanney
By
Anonymous, At
Sunday, 23 April, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home