Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, April 08, 2006

Annasamur laugardagur

Þau undur og stórmerki áttu sér stað í morgun að allir fjölskyldumeðlimir sváfu til níu. Reyndar vaknaði Kalli litli klukkan fimm í nótt og hann fór með pabba sínum niður og þeir fengu sér brauð með osti og kakómalt, en það telst nú varla með.
Ásta fór síðan í líkamsrækt og kom heim með mjólk og brauð fyrir strákana og Daily Mail fyrir húsbóndann. Síðan var ákveðið að gera tvennt um daginn: Annars vegar að laga framgarðinn (heilir 4fm2) og hins vegar að fara með Kalli litla til rakara.
Strákarnir fara alltaf á sömu rakarastofuna. Hún er á High Street rétt hjá Bromley South lestarstöðinni og er rekin af nokkrum Ítölum. Rakarastofan sjálf er pínulítil og gömul, en þar eru samt þrír stólar og smáaðstaða til að bíða út við vegg. Rakararnir eru misgóðir og því ákveðið lotterí á hverjum maður lendir. Einn af þeim er sennilega um áttrætt. Hann er hás og talar með sterkum ítölskum hreim. Af röddinni að dæma gæti hann verið efnilegur Godfather. Hann er hins vegar frekar lítill og veiklulegur með tifandi höfuð og skjálfandi hendur og satt best að segja ekkert sérlega traustvekjandi. Þegar Kalli þarf á klippingu að halda gengur hann stundum framhjá stofunni fyrst til að athuga hvort hann er að vinna. Hann hefur einu sinni klippt Kalla stóra og tókst nú einhvern veginn að gera það þokkalega. Hann afþakkaði hins vegar rakhnífinn sem hann ætlaði að strjúka um hálsinn á honum rétt í lokinn. Honum finnst ítalskur hreimur, rakhnífur og hálsinn á sér bara ekki nógu skemmtileg samsetning.
Kalli litli var heppinn í morgun. Gamli maðurinn var ekki að vinna, heldur þrír karlmenn á aldrinum 25 - 35 sem töluðu með missterkum hreim. Þegar við komum inn tók á móti á okkur rakari með með aparassskegg og ör í framan eftir slæmar unglingabólur. Kalli litli byrjaði að grenja um leið og hann sá hann og hætti ekki fyrr en við fórum út aftur. Rakarinn gerði máttlausar tilraunir til að róa hann en ekkert gekk. Hann tók t.d. sleikibrjóstsykur, fór alveg upp að andlitinu á Kalla, brosti á mjög tilgerðarlegan hátt og sagði:"Do you want a lollypop". Það fór hrollur um okkur bara við að horfa á þetta. Að lokum varð að halda Kalla og raka mestan lubbann með rakvél. Afraksturinn var ekki glæsilegur og við fengum klippinguna ókeypis.
Við verðum sennilega að reyna að laga á honum lýjurnar þegar hann er sofandi.

Garðar fyrir Englendingum eru svona eins og bílar fyrir Íslendingum. Hérna þykir flott að vera með mjög huggulegan garð með alls konar blómum sem þurfa mjög flókna ummönnum. Okkar hefur sannast sagna verið lítl prýði enda lifa ekki margar jurtir nálægt umferðargötu. Við ákváðum því að reyna að finna lausn sem væri smekkleg en þyrfti ekki mikla ummönnum. Niðurstaðan var að kaupa dúk, breiða hann yfir garðinn og setja síðan hvíta steina yfir. Bara nokkuð huggulegt. Við litum reyndar út seinna um daginn og við erum ekki frá því að garðurinn líti út eins og leiði, smekklegt leiði samt. Skýringin er sennilega sú að við keyptum grátt blómakar sem í fljótu bragði lítur út eins og legsteinn.

Við erum bara orðin spennt fyrir páskunum, ætlum að að fara til Kaupmannahafnar í nokkra daga til að heimsækja vinafólk okkar. Ég hef verið að reyna að kenna Óðni að segja Jeg hedder Odinn og jeg skal have en hot dog med hele klabbet og en is med flödeskum og kokosbolle udan sultetoyet. Já, ótrúlegt hvað maður man ennþá dönskuna frá því í menntakóla, þetta er bara eins og að hjóla, gleymist aldrei.

Lifið heil,
Kalli og Ásta

5 Comments:

  • Klippikonan mín hún Bonnie sagði að það væri lang best að klippa unga krakka í baði. Þar væru þau oft rólegust og hægt að greiða þeim og klippa. Hún hefur 35 ára reynslu og hef ég reynt þetta með Kristínu og gengið ágætlega.

    Já það væri gaman að fá mynd af leiðinu ykkar. Sjá hvernig herleg heitin líta út.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 11 April, 2006  

  • Já Ásta mín. Ég get nú ekki alveg tekið undir þetta með dönskuna. Þú ert nú líka að slá um þig með frösum sem voru margtuggðir hér í den. Is med flödeskum og kokosboller uden sultetoyet ómar eins og bjalla í höll minninganna minna, eins minnislaus og ég er - minnst tveir á dag!(fyrir Ástu sko)...en við vorum nú bara fimmtán og sextán þá og ísarnir ekki enn farnir að setjast utan á okkur í heilu lagi.

    Vona þið hafið haft það gott í Köben og sleppt ykkur í ísnum!
    Kær kveðja, Þórunn Ósk

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 17 April, 2006  

  • HÆ hæ Þórunn,
    Metið var 7 ísar síðasta daginn í Köben forðum daga. Helvíti góðar. Var ekki Anna Guðrún með okkur?
    Kær kveðja,
    Ásta

    By Blogger Bromley, At Tuesday, 18 April, 2006  

  • Hei Latur Bromley-Fnatur!

    Er ekkert buid ad gerast tharna sidan 8. April?

    By Blogger Hogni Fridriksson, At Thursday, 20 April, 2006  

  • Heyrðu Fnatur
    Þetta er algert kúkakomment.
    Ásta

    By Blogger Bromley, At Saturday, 22 April, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home