Veitt í soðið
Karl Einar veiddi sinn fyrsta fisk í dag. Veiddum hann í Pollinum. Karl Einar tók þessu öllu af mikilli yfirvegun. Eins og sjá má á myndinni var notaður spónn. Þegar maginn var opnaður komu í ljós fjöldinn allur af litlum fiskum sem eru mjög líkir spóninum. Fiskurinn var drepinn með steini sem barið var í höfuðið á honum ótt og títt. Karl Einar kom síðan með stórt grjót og rak endahnútinn á verkið og var mjög stoltur yfir því að hafa drepið fiskinn.
Borðuðum hann síðan með sætum kartöflum og smjöri. Smakkaðist bara alveg ljómandi vel.

1 Comments:
Ekkert smá stór og flottur fiskur Kalli minn.
Til hamingju með fyrsta fiskinn. Hlökkum mikið til að sjá þig:)
By
Fnatur, At
Friday, 06 June, 2008
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home