Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, May 08, 2008

Grasekkja

Hef aðeins fengið innsýn hvernig líf einstæðrar móður er. Kalli er búinn að vera í Ameríku í nokkra daga og þá er ég allt í öllu. Vakna-nestisgerð-vinna-sækja á leikskóla -aðstoð við heimanám-Tónlistarskóli-þvo þvotta-fara í búðina etc....... eldaði kvöldmat fyrstu 3 dagana...en síðan ekki meir.
Augabrúnalöggan yrði nú ekki ánægð að sjá mig núna, er þó búin að panta í lagfæringu svo hún getur óhrædd komið með mér á kaffihús í sumar án þess að skammast sín.
La vita bella......
Knús
Hlaupakonan

1 Comments:

  • Eins gott að augabrúnirnar verði komnar í gott lag fyrir júní því annars verður feit sekt á ferð:)

    By Blogger Fnatur, At Sunday, 11 May, 2008  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home