Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, April 14, 2008

England so far




Ekki datt mér í hug að mér fyndist gott að koma til Englands í alla umferðartraffíkina og mannmergðina. Það hefur þó verið yndislegt að hitta gömlu vinina og finna að tengslin hafa ekkert dofnað, eiginlega bara styrkst.
Er með vibbastrengi í fótunum í dag þrátt fyrir 1200 mg af íbúfeni. Get labbað stigana með herkjum, þetta hlýtur að fara skánandi.
Óðinn fékk að fara í reiðskóla í dag, fannst frábært og spurði hvort við gætum keypt hestinn sem hann var á. Það er líka mikil hvíld í því að losna við skaflana á Akureyri og komast í sól og 12 gráður þótt ekki sé meira sagt.
Kveðja, Ásta

4 Comments:

  • Ó elsku yndislega systir. TIL HAMINGJU. Ég bara táraðist þegar þú hringdir örstutt í mig eftir maraþonið. Ég er alveg að springa af stolti.
    Óðinn svo myndarlegur með hestinn:)

    Hlakka til að heyra í þér þegar þú kemur heim.

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 15 April, 2008  

  • þú náttúrlega bara rokkar, til lukku með þetta enn og aftur, er einmitt að mana mig í mína 7 km og leit við hér til að hætta að nenna því ekki...

    By Blogger brynjalilla, At Thursday, 17 April, 2008  

  • Hæ,hæ.
    Takk fyrir síðast. Rosalega var gaman að hittast og sjá ykkur Óðinn í gúmmulaði salati hjá
    Jónu Grétu :-).
    Kær kveðja Auður, Orpington

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 22 April, 2008  

  • Hæ hæ.
    Ekkert í gangi á AK?

    By Blogger Fnatur, At Saturday, 26 April, 2008  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home