Þegar kötturinn er að heiman....
Ásta skildi lappann eftir heima óvarinn í vörslu tveggja mjög ábyrgra Kalla, 4 ára og 35 ára. Tölvan man öll lykilorð svo nú eru okkur allar dyr opnar - þar á meðal bloggið.
Ásta og Óðinn kvöddu okkur feðga síðdegis fimmtudaginn 10. apríl. Sá yngri var vitstola af söknuði og kallaði "maaammmma maaaammmmaaaa" á eftir áhyggjufullri móður sinni þar sem hún klofaði yfir skaflana með ferðatöskurnar í átt að leigubílnum. Það var ekki fyrr en 2 mínútum seinna að hann náði sér af sorginni þegar ég leyfði honum að leika "Hulk" og ganga í skrokk á mér með barsmíðum.
Í mínum huga er það algjört lykilatriði að halda rútínu og aga þegar svona rask verður á heimilislífinu. Kalla litla var því alveg ljóst, þegar ég keypti fyrir hann glænýtt reiðhjól daginn eftir, að fleiri reiðhjól yrðu ekki keypt þetta árið. Og til þessa að koma í veg fyrir að hann gengi ekki á lagið - og teldi t.d. að ég væri eitthvað veikur fyrir með gjafir og annað - þá sagði ég við hann mjög skýrt, þegar hann fór að væla um Latabæjar DVD nr. 5 í Hagkaup seinna þennan sama dag, að ég myndi kaupa hann með því skilyrði að Latabæjar DVD nr. 6 yrði ekki keyptur fyrr en í fyrsta lagi eftir rúman sólarhring. "Tough love", Kalli minn, en þetta er þér fyrir bestu.
Til þess treysta feðgjaböndin ákvað ég líka að hafa svona dálítið "macho" máltíð í gærkvöldi. Við feðgar fórum í Bónus saman og rákumst þá líka á þetta dúndurtilboð á frostnum sviðakjömmum. Kalli litli var alveg æstur í þetta sviðakjammadæmi svo ég skellti mér á einn haus; þegar heim var komið virtist þetta reyndar vera einn samsettur haus, þar sem annar helmingurinn var með ljósan húðlit en hinn dökkur, en hvað um það. Það var líka eitthvert alveg ótrúlegt tilboð á tilbúinni rófustöppu, eitthvað sem býðst bara þegar er hlaupaár, Al Gore kemur til landsins og Dabbi hækkar vextina tvo mánuði í röð- svo það var bara ekki annað í stöðunni en að kaupa eina dollu.
En hvað haldiði? Tveggja tíma suða, sviðakjammarnir reddí, rófustappan hlandvolg á borðinu eftir örbylgjuupphitun og alles, þá gugnar gæjinn bara á öllu saman! Segir bara að beinið í maganum á sér borði ekki svið. Ég held að það þurfi að fara að skoða þetta "bein" eitthvað nánar, það virðist ekki leyfa neitt nema pizzur, pilsur og annað álíka hollt. Bara svona okkar á milli þá finnst mér dálítið lélegt að firra sig svona allri ábyrgð á matvendni og varpa því yfir á eitthvert bein sem svo augljóslega er ekki til. Hann ætti að vita það nú, ég er nýbúinn að fara í gegnum mjög áhugaverðar myndir í líffærafræði með honum (gamli góði Netter).
Við áttum síðan alveg prýðilegan dag í dag. Fórum í sund og fórum í búðir. Komum síðan við á bókasafninum þar sem Kalli tók bókina "Hvar endar Einar Áskell". Ég þurfti síðan að lesa þessa bók með honum þegar heim var komið. Gunilla Bergström hefur margt á samviskunni.
Ég eldaði síðan svínabóg í kvöldmat fyrir sjálfan mig, en beinið í maganum á Kalla vildi ekkert nema pizzu. Það lét sig nú samt hafa það að samþykkja speltdeig.
kveðja,
Kalli stóri

2 Comments:
Hahaha yndisleg lýsing á sviðakjömmunum. Pant ekki fá þá í matinn hjá ykkur á Íslandi. Held að beinið í maganum á mér myndi ekki heldur þola það:)
Rófustappan er samt alltaf vel þegin.
Vona að restin af vikunni verði jafn viðburðarík hjá ykkur feðgum:)
By
Fnatur, At
Sunday, 13 April, 2008
HÆhæ
Kalli! Ég held að þú ættir að komast oftar í bloggið... alltaf jafn lifandi lýsingar hjá þér..... og skemmtilegar!
Þarf endilega að fara að fá ykkur í heimsókn... við verðum í bandi.
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Monday, 14 April, 2008
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home